Fréttir

Leikjanámskeið UMFÁS sumarið 2026

Leikjanámskeið UMFÁS sumarið 2026 verður 8. – 11. júní og 30. júní – 3. júlí. Námskeiðið er í boði fyrir börn fædd 2017-2020. Að vanda verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá; leikir, þrautir, gönguferðir, bíó og hinar ýmsu íþróttagreinar prófaðar. Síðast en ekki síst skemmtileg samvera.

Leikjanámskeiðið hefst alla daga kl. 14:15 og lýkur kl. 17:15 nema á fimmtudögum þá er námskeiðið kl. 11:00-14:00. Ef breytingar eru á tímasetningu er það auglýst sérstaklega í Abler.

Umsjón með námskeiðinu hefur Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson.

Skráning er á Abler: https://www.abler.io/shop/umfas/1