Barna- og unglingastarf.
Körfubolti er grein sem mikið hefur verið stunduð innan Ungmennafélagsins ÁS. Segja má að körfuboltinn hafi verið endurvakinn innan félagsins árið 2020 þegar Gunnar Erlendsson tók að sér að vera með körfuboltaæfingar fyrir 5.-10. bekk.
Veturinn 2025/2026 er boðið uppá körfuboltaæfingar frá fyrsta og upp í níundabekk bekk. Þorsteinn Valur Throarinsen sér um þjálfunina.
Krakkarnir okkar hafa sótt nokkur mót þar sem þau hafa keppt í körfubolta. Þetta eru:
-Mót á Hvolsvelli
-Vormót USVS.
-Unglingalandsmót UMFÍ.
Fullorðinsbolti.
Körfubolti fyrir fullorðna er á dagskránni einu sinni í viku. Á miðvikudögum frá kl. 19:00-20:30.
Meðfylgjandi mynd er frá Vormóti USVS í körfubolta árið 2023 sem haldið var á Kirkjubæjarklaustri.

