Næsta ganga í Skaftártungu

Við höldum áfram að ganga saman á föstudögum! Næstkomandi föstudag, 11. júlí, er komið að því að ganga í Skaftártungu. Það eru Pálmar Atli og María Ösp sem hafa umsjón með göngunni. Mæting er kl. 19:00 í hlaðið á Ljótarstöðum þaðan sem gengið verður meðfram Tungufljóti að Hrossafossi. Gangan er nokkuð létt og þægileg, u.þ.b. 6 km. Frábær mæting hefur verið í göngum sumarsins sem er svo sannarlega mjög ánægjulegt. Fjölmennum!
Lesa

Mikið líf og fjör á leikjanámskeiði

Leikjanámskeiði UMFÁS lauk í dag. Námskeiði var tvískipt í ár, fyrstu dagar námskeiðsins voru 18.-20. júní og seinni hlutinn 30. júní til dagsins í dag. Fyrsta námskeiðið í þessari mynd fór fram árið 2020 og var þetta því sjötta árið í röð sem boðið er upp á leikjanámskeið með þessu sniði. Öll árin höfum við fengið slökkvilið Skaftárhrepps í heimsókn og erum við innilega þakklát þeim fyrir það. Það vekur alltaf mikla lukku hjá krökkunum og kíktu þeir einmitt í heimsókn til okkar í dag í blíðunni. Góð og skemmtileg samvera lýsir námskeiðunum best. Fullt af leikjum og hinar ýmsu…
Lesa

Næsta ganga 4. júlí í Meðallandi – Gengið að Feðgum

Næsta ganga á göngudagskrá UMFÁS verður í Meðallandi föstudaginn 4. júlí næstkomandi. Göngustjóri að þessu sinni er Kristín Lárusdóttir. Mæting er að Hnausum kl. 19:00 og þaðan verður gengið að eyðibýlinu Feðgum. Gangan er c.a. 5 km samtals. Ef það verður logn er mælt með því að hafa með sér flugnanet. Verið öll velkomin!
Lesa

Fullorðinsíþróttir sumarið 2025

Minnum á skráningu á fullorðinsæfingar sumarsins. Strandblak, fótbolti og körfubolti á dagskránni. Skráning á Sportabler: https://www.abler.io/shop/umfas/1
Lesa

Líf og fjör í knattspyrnu- og skákskóla AVP

Tíunda árið í röð fór Knattspyrnu- og skákskóli AVP ehf. fram í Vík. Venju samkvæmt var skáknámskeið í Víkurskóla fyrir hádegið og svo var spilaður fótbolti á íþróttavellinum eftir hádegið. Knattspyrnu- og skákskólinn var settur á laggirnir fyrir frumkvæði AVP ehf. í Vík á sínum tíma og Sveinbjörn Jón Ásgrímsson (Sveinki) hefur haldið utan um námskeiðið öll þessi ár. Námskeiðið er opið öllum börnum og unglingum á grunnskólaaldri innan USVS. Þátttaka var mjög góð og fjölmenntu bæði iðkendur frá Umf. Kötlu og UMFÁS á námskeiðið. Við þökkum AVP ehf. og Sveinka fyrir okkur þetta árið sem og Ungmennafélaginu Kötlu fyrir…
Lesa

Strandblaksnámskeið 26.-27. júlí

Við eigum von á góðri heimsókn á Kirkjubæjarklaustur dagana 26.-27. júlí en þá ætlar Thelma Dögg Grétarsdóttir að koma til okkar með námskeið. Thelma er landsliðskona í blaki og strandblaki. Þar að auki er hún landsliðsþjálfari hjá unglingalandsliðum Íslands. Thelma kom einnig til okkar einn dag í ágúst 2023. Að þessu sinni verður boðið upp á tveggja daga námskeið. Fyrsti kostur er að vera með strandblaksnámskeið þessa daga ef veður leyfir en ef eitthvað verður að veðri munum við færa okkur inni í íþróttahús. Athugið að námskeiðið er í boði fyrir börn og unglinga sem og fullorðna! Við hvetjum ykkur…
Lesa

Skráning á íþróttaæfingar opin til 29. júní

Nú styttist óðum í að skráningu ljúki á æfingar sumarsins. En svo styttist jafnframt í að skráning hefjist á stærsta íþróttaviðburð sumarsins, Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum um Verslunarmannahelgina þar sem 11-18 ára hafa keppnisrétt. Það er um að gera fyrir krakkana okkar að nýta sér þær æfingar sem eru í boði til undirbúnings fyrir landsmót. Strandblak, fótbolti, körfubolti og frjálsar eru í boði á dagskrá UMFÁS í sumar og svo má auðvitað alltaf nýta okkar góða frisbýgolf völl enda er það ein af keppnisgreinunum 20 á Unglingalandsmóti. Ekki þarf mjög marga til að manna lið í boltagreinum og er því…
Lesa