
Unnið er að því að setja saman göngudagskrá fyrir sumarið. Okkur langar að gera líkt og í fyrra að bjóða upp á göngutúra víðsvegar um Skaftárhrepp. Hafi einhver áhuga á því að bjóða upp á göngu í sínu nærumhverfi í sumar væri það mikið skemmtilegt!
Dagsetningar sumarsins eru eftirfarandi:
- 19. júní > Landbrotshólar – gengið frá sumarbústaðahverfinu Hæðargarði
- 26. júní
- 3. júlí
- 10. júlí
- 17. júlí
- 24. júlí
Endilega hafið samband við Fanney Ólöfu í síma 894 1560 eða í tölvupósti, umfas@klaustur.is, ef þið hafið áhuga á að bjóða upp á göngu.
