Karate

Karate kom inn sem ný grein í íþróttastarf ungmennafélagsins á vorönn árið 2021.
Gunnar Erlendsson er karateþjálfari UMFÁS. Boðið hefur verið uppá karateæfingar á haust- og vorönn frá því að greinin var fyrst stunduð á Klaustri árið 2021.
Gunnlaugur Sigurðsson karateþjálfari hjá Haukum hefur komið í heimsókn til okkar á Klaustur tvö ár í röð með námskeið. Gunnlaugur hefur endað námskeiðin á prófum þar sem iðkendum gefst færi á að vinna sér inn ný belti.

Á meðfylgjandi mynd má sjá eldri hópinn sem lauk prófi vorið 2023 ásamt sensei Gunnlaugi Sigurðssyni (lengst til vinstri) og þjálfarnum Gunnari Erlendssyni (lengst til hægri).