
Móðuharðindin, körfuboltamót UMFÁS í fullorðinsflokki, fór fram í íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri síðastliðinn laugardag 26. apríl.
Að þessu sinni voru mætt þrjú lið til leiks. Sigurvegarnir frá því í fyrra í ÁS Young Bloods, Íþróttafélagið Dímon átti lið í fyrsta skipti og svo voru liðsmenn ÁS Old Boys að sjálfsögðu mættir til leiks enn eitt árið.
ÁS Young Bloods komu, sáu og sigruðu annað árið í röð. Í öðru sæti var Íþróttafélagið Dímon og í þriðja sæti voru heimamenn í ÁS Old Boys.
Það var Ásgeir Örn Sverrisson (ÁS Young Bloods) sem var útnefndur leikmaður mótsins en hann var jafnframt stigahæstur, með 24 stig í fjórum leikjum. Næstur á eftir honum í stigaskorinu var Gunnar Pétur (ÁS Old Boys) með 23 stig skoruð. Þriðji var Sigurður Gísli (ÁS Young Bloods) með 19 stig skoruð.
Eins og alltaf eru veittar ýmsar skemmtilegar viðurkenningar að móti loknu.
Maður mótsins: Ásgeir Örn Sverrisson
Slöggmótsins: Gunnar Pétur og Kolbeinn
Stoðsending mótsins: Gunnar Erlendsson fyrir sendingu á Jón Atla í leik gegn Young Bloods
Frákast mótsins: Rannveig Ólafsdóttir
Eins og alltaf í kringum svona mót skipta sjálfboðaliðar öllu máli. Þeir leysa hin ýmsu hlutverk, má þar m.a. nefna ritaraborð og dómgæslu og þökkum við öllum þeim sem lögðu til vinnu við mótið innilega fyrir.
Að móti loknu hittustu keppendur á Rabbabar (Kjarr Restaurant) þar sem boðið var upp á grillaða hamborgara og hóf eftir skemmtilega keppni.