Frjálsar íþróttir eru stundaðar hjá Ungmennafélaginu ÁS yfir allt árið. Sú breyting varð frá og með haustinu 2024. Frjálsar íþróttir höfðu fyrir það helst verið stundaðar yfir sumartímann. Alltaf er reynt að fara á a.m.k. eitt stórt mót á hverjum vetri og svo er innanhúsmót USVS haldið árlega í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri, yfirleitt í febrúar.
Sigurður Eyjólfur hefur umsjón með æfingum í frjálsum íþróttum.