Fréttir

Skráning á Unglingalandsmót stendur yfir til 31. júlí

Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina er nú í fullum gangi. Opið er fyrir skráningar til mánudagsins 31. júlí, mótið er fyrir börn og unglinga 11-18 ára.

Keppnisgreinar mótsins eru alls 19 og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvetjum alla til að kynna sér keppnisgreinarnar!

Skráning fer fram á ulm.is ! USVS greiðir þátttökugjald fyrir sína keppendur líkt og síðustu ár.

Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa USVS á landsmótinu 2022 á Selfossi. Þar hlaut USVS fyrirmyndarbikar UMFÍ.