Frjálsar íþróttir

Frjálsar íþróttir eru stundaðar hjá Ungmennafélaginu ÁS yfir allt árið. Frjálsar íþróttir höfðu fyrir það helst verið stundaðar yfir sumartímann. Alltaf er reynt að fara á a.m.k. eitt stórt mót á hverjum vetri og svo er innanhúsmót USVS haldið árlega í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri, yfirleitt í febrúar.

Rannveig Ólafsdóttir hefur umsjón með æfingum í frjálsum íþróttum.