Barna- og unglingastarf.
Knattspyrna hefur verið stunduð á Kirkjubæjarklaustri til fjölda ára.
Á vorönn 2026 eru Guðmundur Ingi Arnarsson og Pálmar Atli Jóhannesson knattspyrnuþjálfarar UMFÁS.
Knattspyrna er stunduð allan ársins hring. Æfingar á veturnar fara fram í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri en yfir sumartímann á íþróttavellinum á Kleifum.
Allt mótastarf er unnið í USVS samstarfi og er þar mest um að vera á sumrin.
Helstu viðburðir í knattspyrnustarfi UMFÁS:
-Innanhúsmót USVS í fótbolta að hausti og vori.
-Knattspyrnuskóli AVP í Vík á sumrin.
-Smábæjaleikarnir á Blönduósi í júní ár hvert.
-Unglingalandsmót UMFÍ um Verslunarmannahelgina árlega.
-Einnig er reynt að brjóta upp starfið öðru hverju og fara í æfingaferðir.
Fullorðnir.
Fullorðinsbolti er á dagskránni tvisvar í viku. Á þriðjudögum og laugardögum frá kl. 19:00-20:30.
Meðfylgjandi mynd er frá einum af heimsóknum Mola frá KSÍ á Kirkjubæjarklaustur en hann hefur nú komið árlega frá árinu 2019.

