Fréttir

Frábær mæting í fyrstu göngu sumarsins

Það var frábær mæting í fyrstu göngu UMFÁS. Gengið var frá sumarbústaðahverfinu í Hæðargarði, stoppað á Sönghól, Tunguskjóli, Gluggaskeri, Einbúa, Myrkrastofu og Hvílukletti. Við þökkum öllum fyrir komuna og þökkum Hauki Valdimarssyni kærlega fyrir góða leiðsögn og skemmtilega sögustund.

Eftir viku verður gengið á Holtsborg.