Fréttir

Undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur á aðalfundi UMFÁS

Á aðalfundi Ungmennafélagsins ÁS 6. mars 2026 var undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur Skafthrepps og UMFÁS. Fyrri samningur rann út um síðustu áramót en hefur nú verið endurnýjaður til fjögurra ára. Hann er með aðeins breyttum áherslum og mun styrkja starf Ungmennafélagsins mikið. Samninginn má sjá hér fyrir neðan og einnig má sjá mynd af Einari Kristjáni sveitarstjóra Skaftárhrepps og Fanney Ólöfu formanni UMFÁS að undirrita og handsala samninginn.