Fréttir

Göngudagskrá UMFÁS sumarið 2026 – vilt þú bjóða upp á göngu í þínu nærumhverfi?

Unnið er að því að setja saman göngudagskrá fyrir sumarið. Okkur langar að gera líkt og í fyrra að bjóða upp á göngutúra víðsvegar um Skaftárhrepp. Hafi einhver áhuga á því að bjóða upp á göngu í sínu nærumhverfi í sumar væri það mikið skemmtilegt!

Dagsetningar sumarsins eru eftirfarandi:

  • 19. júní > Landbrotshólar – gengið frá sumarbústaðahverfinu Hæðargarði
  • 26. júní
  • 3. júlí
  • 10. júlí
  • 17. júlí
  • 24. júlí

Endilega hafið samband við Fanney Ólöfu í síma 894 1560 eða í tölvupósti, umfas@klaustur.is, ef þið hafið áhuga á að bjóða upp á göngu.