Fréttir

Viðurkenningar veittar á aðalfundi UMFÁS

Á aðalfundi Ungmennafélagsins ÁS sem haldinn var föstudaginn 6. mars 2026 voru veittar þrjár viðurkenningar fyrir árið 2025. Íþróttanefnd UMFÁS sá um afhendingu viðurkenninga.

Efnilegasti íþróttamaðurinn: Rúnar Smári Ragnarsson Blandon
Hvatningarverðlaun: Kristófer Gunnar Bjarkason
Félagi ársins / Heiðursfélagi: Sigmar Helgason