Fréttir

Systrakaffi og jólasveinar afhentu styrk

Síðastliðinn laugardag fékk Ungmennafélagið Ármann afhentan styrk frá Systrakaffi og jólasveinum.

Styrkurinn frá Systrakaffi er ágóði af seldum spjöldum frá jólabingóinu sem haldið var þann 21. desember. Nú þegar hefur verið ákveðið að nýta styrkinn í að bjóða krökkum í Skaftárhreppi upp á handboltanámskeið um komandi helgi.

Síðan létu tveir fjörugir jólasveinar sjá sig sem hafa verið á ferðinni á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni á Aðfangadag undanfarin ár. Að þeirra sögn hafa jólasveinar ekkert að gera við peninga og ákváðu því að styrkja Ungmennafélagið Ármann.

Við þökkum Systrakaffi og jólasveinunum innilega fyrir styrkinn!