Fréttir

Skráningu á leikjanámskeiðið lýkur í dag

Skráningu á hið vinsæla leikjanámskeið UMFÁS lýkur í dag. Nú þegar er komin mjög góð þátttaka á námskeiðið líkt og fyrri ár.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá eins og alltaf! Leikir, þrautir, gönguferðir, bíó, hinar ýmsu íþróttagreinar prófaðar og skemmtileg samvera.

Leikjanámskeiðsteymið þetta árið skipa þau Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, Ásgeir Örn Sverrisson, Ólöf Ósk Bjarnadóttir og Kjartan Valur Ólafsson sem kemur nýr inni í teymið.

Hægt er að velja á milli þess að skrá í eina viku eða tvær. Eina vika kostar kr. 5.500 en tvær kr. 9.500
Skráningin fer að sjálfsögðu fram í vefversluninni á Sportabler https://www.abler.io/shop/umfarmann