
Það var heldur betur mikið líf og fjör í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri í gær þegar lokahóf vorannar fór fram. Í starfi UMFÁS er það orðin hefð að bjóða upp á lokahóf í lok hverrar annar. Þegar kemur að lokahófunum býr félagið svo vel að eiga foreldraráð sem heldur að mestu leyti utan um skipulag á þessum viðburðum.
Á lokahófið mæta öll börn og ungmenni sem hafa tekið þátt í íþróttastarfinu í vetur. Foreldraráðið hafði skipulagt leikjafjör sem heppnaðist afar vel og vakti mikla lukku. Að því loknu gæddu sér allir á grilluðum pylsum. Að því loknu afhenti Sigurður Eyjólfur, íþróttafulltrúi Skaftárhrepps, umsagnarskjal með þökk fyrir þátttökuna á íþróttaæfingum vetrarins. Áður en kom að því greip Bjarni Bjarnason orðið fyrir hönd foreldra barna sem stunda íþróttir hjá UMFÁS og veitti Sigurði þakklætisvott fyrir sín störf en hann lætur af störum í ágúst.
Foreldraráð UMFÁS fær miklar þakkir fyrir sína flottu dagskrá! Að sama skapi þökkum við Sláturfélagi Suðurlands sérstaklega fyrir þeirra framlag en þeir gáfu okkur pylsurnar. Einnig fá þau Auður Eyþórsdóttir og Guðmundur Vignir kærar þakkir fyrir að vera okkur alltaf innan handar þegar eitthvað vantar, en þau lögðu til pylsubrauð og safa á lokahófið.
Dagskrá sumarsins verður kynnt vel á næstu dögum. Áætlað er að íþróttaæfingar hefjist að nýju í vikunni eftir Hvítasunnu, frá og með 10. júní. Áður en að því kemur verður Trampólín námskeið dagana 4.-6. júní, sameiginlegar fótboltaæfingar sem og auðvitað heimsókn Mola frá KSÍ. Allt um íþróttir sumarsins og skráningu á viðburði verður kynnt strax eftir helgi. Nú þegar er hægt að kynna sér helstu dagsetningar í viðburðadagatalinu hér á heimasíðunni.

