Fréttir

Karateæfingar fyrir fullorðna hefjast á morgun

Ungmennafélagið Ármann mun að sjálfsögðu bjóða upp á ýmsa hreyfiviðburði fyrir fullorðna á komandi hausti.

Í síðustu viku hófst körfuboltinn. Hann verður á miðvikudögum í haust frá kl. 19:30-21:00. Annað kvöld hefst svo karate fyrir fullorðna, þjálfari er Gunnar Erlendsson. Æfingarnar fara fram á þriðjudögum í haust frá kl. 19:30-20:30. Æfingin á morgun er opin til prufu! Síðar í vikunni mun svo opna fyrir skráningar á Sportabler og þá þarf að borga skráningargjöld ætli fólk sér að vera áfram með.

Fleiri greinar munu svo bætast við fullorðinssportið þegar líður á haustið. Það verður kynnt betur síðar!