Fréttir

Handboltafjör í janúar

Það er nú orðin árleg hefð að vera með handboltanámskeið í kringum stórmótin í handbolta. Námskeiðið að þessu sinni fór fram dagana 16.-18. janúar. Námskeiðið var í boði styrktaraðila UMFÁS.

Fyrsta dag námskeiðsins fengum við heimsókn frá fulltrúum HSÍ. Það voru Selfyssingarnir þeir Örn Þrastarson og Rúnar Hjálmarsson sem komu til okkar. Ungmennafélagið ÁS leitaði til Kirkjubæjarskóla með samstarf í tilefni þessarar heimsóknar sem tekið var vel í og tóku allir nemendur grunnskólans þátt á handboltaæfingu þann 16. janúar.

Næstu tvo daga var svo boðið upp á námskeið þar sem Sigurður Eyjólfur hafði umsjón með æfingum. Endað var á því að koma saman á laugardeginum og horfa saman á leik Íslands og Kúbu á HM í handbolta. Fyrir leik stóð foreldranefnd UMFÁS fyrir pizzapartýi og þökkum við Gunnari Erlendssyni og Bjarna Bjarnasyni fyrir frábæra frammistöðu í eldhúsinu.

Þátttaka á námskeiðinu var góð eins og alltaf á handboltanámskeiðum og voru u.þ.b. 25 sem tóku á námskeiðinu. Þetta var í fjórða skiptið sem handboltanámskeið er haldið á Kirkjubæjarklaustri í þessari mynd og er vonandi hefð sem komin er til að vera!