Fréttir

Góð þátttaka á fimleikanámskeiði

Það var líf og fjör í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri um helgina þar sem fór fram fimleikanámskeið. Þjálfari á námskeiðinu var Birna Sólveig Kristófersdóttir.

Fimleikar hafa ekki mikið verið stundaðir á Klaustri. En í sumar buðum við fyrst upp á helgarnámskeið sem var mjög vel sótt og mikil ánægja var með.

Það var því afar ánægjulegt að geta boðið upp á annað námskeið nú um helgina. Líkt og síðast þá var námskeiðið vel sótt og mikil gleði.

Að lokum þökkum við Birnu kærlega fyrir komuna. Jafnframt færum við vinum okkar í Umf. Kötlu bestu þakkir fyrir að lána okkur dýnu fyrir námskeiðið sem og AVP í Vík fyrir flutninginn á dýnunni.