Fréttir

Fyrsta ganga sumarsins 13. júní

Fyrsta ganga sumarsins á göngudagskrá UMFÁS verður næstkomandi föstudag 13. júní kl. 20:00.
Þá verður gengið meðfram Grenlæk, u.þ.b. tveggja tíma ganga.

Göngustjóri er Þórunn Júlíusdóttir. Gengið verður frá Seglbúðum og er mæting í hlaðið hjá Þórunni.

Það er heldur betur flott göngudagskráin í sumar!
13. júní – Landbrot – Göngustjóri: Þórunn Júlíusdóttir
20. júní – Síða – Göngustjóri: Guðríður Jónsdóttir
4. júlí – Meðalland – Göngustjóri: Kristín Lárusdóttir
11. júlí – Skaftártunga – Göngustjórar: Pálmar Atli og María Ösp
18. júlí – Fljótshverfi – Göngustjórar: Björn Helgi og Ragnheiður Hlín
25. júlí – Álftaver – Göngustjórar: Sæunn Káradóttir og Konný Sif

Við hvetjum alla til að taka virkan þátt í göngudagskrá sumarsins og þökkum öllum þeim sem voru tilbúin til að bjóða upp á göngur og skapa þessa flottu dagskrá með okkur!