Fréttir

Boðað til félagsfundar 17. nóvember

Ungmennafélagið Ármann boðar til félagssfundar föstudaginn næstkomandi, 17. nóvember, kl. 19:30. Fundurinn verður haldinn á Systrakaffi. Boðið verður upp á pizzahlaðborð á fundinum.

Á dagskrá fundarins er kynning á hugmynd um sameiningu Ungmennafélaganna í Skaftárhreppi, Ármanns og Skafta.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og ræða sameiningarmálin frá öllum hliðum.

Stjórnin