
Sumaræfingar að hefjast!
Svona verður skipulagið í sumar:
Mánudagar – Strandblak: Fyrsta æfing 16. júní
Þriðjudagar – Fótbolti: Fyrsta æfing 10. júní
Miðvikudagar – Frjálsar íþróttir: Fyrsta æfing 11. júní
Fimmtudagar – Körfubolti: Fyrsta æfing 12. júní
Við hvetjum krakkana til að vera opin fyrir því að prófa sem mest, það verður mikið fjör hjá okkur í sumar og við vonumst til að sjá frábæra þátttöku á æfingum og námskeiðum sumarsins!
Minnum einnig á að við stefnum á að vera með fullorðinsæfingar í strandblaki, fótbolta og körfubolta og því um að gera fyrir þá fullorðnu að skrá sig líka! Strandblak á mánudögum, fótbolti á miðvikudögum og körfubolti á fimmtudögum.
Hér er hlekkur í vefverslun UMFÁS á Sportabler: https://www.abler.io/shop/umfas
Tímasetningar á æfingum vikunnar munu birtast hér á Facebook síðu félagsins, á heimasíðunni sem og auðvitað á Sportabler fyrir þá sem eru búnir að ganga frá skráningu. Síðasti skráningardagur er 17. júní. Aldursskipting á æfingum sumarsins mun skýrast þegar skráning liggur fyrir.