Fréttir

Gengið upp á Pétursey á sunnudaginn

Það styttist nú óðum í að sumarstarfið taki enda og nú er komið að síðustu göngu sumarsins.

Að þessi sinni býður Sigurður Eyjólfur upp á göngu á heimaslóðum sínum á sunnudaginn. Gengið verður upp á Pétursey í Mýrdal. Mæting er við kappreiðavöllinn vestan við Pétursey og er áætlað að ganga af stað kl. 14:00.

Gangan er nokkuð þægileg, það eru stuttir kaflar sem gengið er í skriðu, en annars er allt gróið og nokkuð auðvelt yfirferðar.