Fréttir

Hvatningar- og framfaraverðlaun afhent á aðalfundi

Á aðalfundi þann 8. mars síðastliðinn voru afhent hvatningar- og framfaraverðalun fyrir starfsárið 2023-2024.

Skilgreining á viðurkenningunum:
Hvatningarverðlaun: Þessi viðurkenning er veitt einstaklingi sem mætir mjög vel á æfingar. Sýnir þar mikinn áhuga og virkni ásamt fyrirmyndar framkomu.
Framfaraverðlaun: Þessi viðurkenning er veitt einstaklingi sem tekið hefur miklum framförum. Sýnt af sér góða framkomu og mætt vel á æfingar.

Hvatningarverðlaunin hlaut Ólöf Ósk Bjarnadóttir og framfaraverðlaunin hlaut Ásgeir Örn Sverrisson. Mynd af verðlaunahöfunum er hér meðfylgjandi. Til hamingju með þessar viðurkenningar!

Mynd: Fanney Ólöf Lárusdóttir