Fréttir

Vill fyrirtækið þitt styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf í Skaftárhreppi?

Ungmennafélagið ÁS leitar eftir fleiri fyrirtækjum sem vilja bætast í hóp styrktaraðila félagsins. Með kaupum á auglýsingaskilti sem sett verður upp í íþróttasal íþróttamiðstöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri.

Ungmennafélagið ÁS býður öllu starfsfólki þeirra fyrirtækja sem styrkja félagið að stunda þær fullorðinsíþróttir, sem í boði eru hverju sinni, sér að kostnaðarlausu. Mikil ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag.

Hafir þú áhuga að vita meira getur þú sett þig í samband við Sigurð Eyjólf, íþróttafulltrúa Skaftárhrepps, með því að senda tölvupóst á siggi@klaustur.is