Fréttir

Lífshlaupið hefst 7. febrúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Keppnisflokkarnir eru eftirfarandi:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
Hreystihópar 67+ í þrjár vikur í febrúar

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 67+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Inn á https://www.lifshlaupid.is/ má finna nánari upplýsingar og jafnframt skrá sig til leiks.

Hér meðfylgjandi má sjá þá hreyfiviðburði sem framundan eru í Skaftárhreppi í febrúar. Vekjum athygli á því að allar æfingar eru opnar nú í febrúar í tilefni Lífshlaupsins. Við bjóðum upp á hreyfingu fyrir alla aldurshópa, við hvetjum alla til að koma og hreyfa sig með okkur!