Fréttir

Breyting á tímasetningu karateæfinga

Ákveðið var á síðasta stjórnarfundi Umf. Ármanns að sameina karateæfingar á þriðjudegi og miðvikudegi í eina æfingu.

Æfingar 5.-10. bekkjar og fullorðna verða hér eftir kl. 18:15 til 19:15 á þriðjudögum. Tekur þetta gildi frá og með deginum í dag, þriðjudeginum 7.11.

Beðist er velvirðingar á hvað þessi breyting er auglýst með skömmum fyrirvara.