Fréttir

Íþróttasumrinu 2023 lokið – Takk fyrir sumarið!

Íþróttastarfi sumarsins lauk formlega nú síðdegis með leikjafjöri og grilluðum pylsum!

Þátttaka á æfingum og námskeiðum var heillt yfir mjög góð. Alls tóku 42 þátt í barna- og unglingastarfi félagsins í sumar sem er frábært!

Einn af viðburðunum sem félagið stóð fyrir í sumar voru göngutúrar á föstudagskvöldum fyrir alla fjölskylduna. Þeir voru vel sóttir og er stefnt á það að bjóða áfram uppá göngutúra í haust. En það verður betur auglýst síðar.

Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í starfi félagsins á liðnu sumri kærlega fyrir þátttökuna. Við hlökkum til að sjá ykkur á hreyfiviðburðum félagsins í vetur!

Meðfylgjandi mynd er frá lokahófinu í dag.