Íþróttaskóli UMFÁS og Móðuharðindin
Það var nóg að gera hjá Ungmennafélaginu ÁS laugardaginn 28. mars síðast liðinn. Dagurinn byrjaði á síðasta Íþróttaskóla UMFÁS fyrir 2-5 ára börn á vorönn 2026. Það var mikið líf og fjör. Börnin mættu í búningum og fengu gríðarlega góða ,,hreyfiútrás“ 😊Í lok Íþróttaskóla fengu börnin ávaxta- og grænmetishressingu og börnin fengu frá UMFÁS viðurkenningu og buff með merki félagsins fyrir að hafa staðið sig frábærlega í vetur í Íþróttaskólanum.
Strax að Íþróttaskóla loknum hófst undirbúningur fyrir Móðuharðindin sem er körfuboltamót fullorðinna. Mótið hófst á slaginu 13. Sjö lið mættu til leiks og spilaðir voru 21 leikur. Tvö kvenna lið mættu, frá Garpi og Kötlu og það kom einnig karlalið frá Kötlu, frá Dímon komu tvö karlalið og tvö karlalið frá ÁS. Liðin sáu um að dæma leikina hvort hjá öðru og gekk það vel.
Það eru margar hendur sem koma að undirbúningi svona móts og vill félagið þakka kærlega fyrir vel unnin störf. Sigurður Eyjólfur sá um að setja upp leikjaplan, Gunnar Pétur sá um að taka á móti skráningum og skipulagið á mótinu. Á ritaraborðinu voru Sigmar og Bjarni Dagur og stóðu sig mjög vel þar. Gunnar Erlends sá um allt hitt, skaffa orgel og orgelleika, reddaði sjoppunni og margt fleira. Svavar tónlistarskólastjóri sá um undirspil á meðan á leikjum stóð og gerði leikina ennþá meira spennandi. Indíana Gyða og Heiða Guðbjörg sáu um sjoppuna. Formaður UMFÁS var á kantinum, pantaði verðlaunapeninga, hélt utan um tölfræði mótsins og veitti hinar ýmsu viðurkenningar sem veittar voru á Kjarr um kvöldið. Síðan voru margir áhorfendur sem gerir þetta allt mjög skemmtilegt. Við viljum þakka Systrakaffi fyrir að redda okkur um pizzur til að selja í sjoppunni og Kjarr fyrir að taka á móti okkur eftir mót og elda hamborgara í liðin að móti loknu.
ÁS Young Bloods stóðu uppi sem sigurvegarar þriðja árið í röð. Þeir unnu alla sína leiki. Litli-Dímon var í öðru sæti og karlalið Kötlu í þriðja sæti.
Takk allir fyrir frábæran dag ❤️







