Fréttir

Fréttir af aðalfundi UMFÁS

Aðalfundur Ungmennafélagsins ÁS var haldinn föstudagskvöldið 6. mars 2026. Góð mæting var og ánægjulegt að finna áhuga og hug í fundargestum varðandi starf félagsins. Helstu fréttir eru að reksturinn gengur vel, undirritaður var þjónustu- og samstarfssamningur Skaftárhrepps og UMFÁS og veittar voru viðurkenningar. Um hvort tveggja má sjá nánar í öðrum fréttum á heimasíðunni.

Fundargerð aðalfundarins mun verða birt á heimasíðunni á allra næstu dögum.