Fréttir frá Ungmennafélaginu ÁS
Íþróttaskóli UMFÁS og Móðuharðindin Það var nóg að gera hjá Ungmennafélaginu ÁS laugardaginn 28. mars síðast liðinn. Dagurinn byrjaði á síðasta Íþróttaskóla UMFÁS fyrir 2-5 ára börn á vorönn 2026. Það var mikið líf og fjör. Börnin mættu í búningum og fengu gríðarlega góða ,,hreyfiútrás“ 😊Í lok Íþróttaskóla fengu börnin ávaxta- og grænmetishressingu og börnin fengu frá UMFÁS viðurkenningu og buff með merki félagsins fyrir að hafa staðið sig frábærlega í vetur í Íþróttaskólanum. Strax að Íþróttaskóla loknum hófst undirbúningur fyrir Móðuharðindin sem er körfuboltamót fullorðinna. Mótið hófst á slaginu 13. Sjö lið mættu til leiks og spilaðir voru 21…

