Undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur á aðalfundi UMFÁS

Undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur á aðalfundi UMFÁS

Á aðalfundi Ungmennafélagsins ÁS 6. mars 2026 var undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur Skafthrepps og UMFÁS. Fyrri samningur rann út um síðustu áramót en hefur nú verið endurnýjaður til fjögurra ára. Hann er með aðeins breyttum áherslum og mun styrkja starf Ungmennafélagsins mikið. Samninginn má sjá hér fyrir neðan og einnig má sjá mynd af Einari Kristjáni sveitarstjóra Skaftárhrepps og Fanney Ólöfu formanni UMFÁS að undirrita og handsala samninginn. Thonustusamningur-06-03-2026Download
Lesa
Fréttir af aðalfundi UMFÁS

Fréttir af aðalfundi UMFÁS

Aðalfundur Ungmennafélagsins ÁS var haldinn föstudagskvöldið 6. mars 2026. Góð mæting var og ánægjulegt að finna áhuga og hug í fundargestum varðandi starf félagsins. Helstu fréttir eru að reksturinn gengur vel, undirritaður var þjónustu- og samstarfssamningur Skaftárhrepps og UMFÁS og veittar voru viðurkenningar. Um hvort tveggja má sjá nánar í öðrum fréttum á heimasíðunni. Fundargerð aðalfundarins mun verða birt á heimasíðunni á allra næstu dögum.
Lesa