Íþróttasumrinu 2023 lokið – Takk fyrir sumarið!

Íþróttastarfi sumarsins lauk formlega nú síðdegis með leikjafjöri og grilluðum pylsum! Þátttaka á æfingum og námskeiðum var heillt yfir mjög góð. Alls tóku 42 þátt í barna- og unglingastarfi félagsins í sumar sem er frábært! Einn af viðburðunum sem félagið stóð fyrir í sumar voru göngutúrar á föstudagskvöldum fyrir alla fjölskylduna. Þeir voru vel sóttir og er stefnt á það að bjóða áfram uppá göngutúra í haust. En það verður betur auglýst síðar. Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í starfi félagsins á liðnu sumri kærlega fyrir þátttökuna. Við hlökkum til að sjá ykkur á hreyfiviðburðum félagsins í vetur! Meðfylgjandi…
Lesa

Íþróttastarf barna og unglinga á haustönn

Eins og auglýst var í gær þá hefst íþróttastarf barna og unglinga á haustönn strax í næstu viku. Það er því komið að því að kynna það sem framundan er! Fyrirkomulag æfinga hjá 1.-4. bekk.Allir með verkefnið fer af stað hjá 1.-4. bekk. Um er að ræða samstarfsverkefni Kirkjubæjarskóla, Skaftárhrepps og Ungmennafélagsins Ármanns. Nánar má lesa um það hér: Krakkarnir munu fá afhent valblað þar sem þau velja sér eina grein og skila svo inn til umsjónarkennara. Allar æfingar eru opnar til prufu fyrstu tvær kennsluvikunnar og því er miðað við að valblaðinu sé skilað fimmtudaginn 31. ágúst. Karateæfingar verða…
Lesa

Lokahóf íþróttastarfs sumarið 2023

Lokahóf íþróttastarfs sumarið 2023 fer fram næstkomandi mánudag, 21. ágúst. Dagskráin hefst strax að lokinni skólasetningu Kirkjubæjarskóla. Nánari upplýsingar í auglýsingunni hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!
Lesa

Íþróttastarf haustannar hefst í næstu viku

Nú er sumarstarf félagsins senn á enda, síðustu æfingarnar eru í kvöld og sumarstarfinu lýkur svo formlega með lokahófi á mánudaginn. Íþróttastarf haustannar hefst strax í næstu viku. Starfið verður með nokkuð hefðbundu sniði en eitthvað verður samt um breytingar frá síðasta vetri. Stærsta breytingin verður nýtt fyrirkomulag á æfingum 1.-4. bekkjar. Allir með verkefnið fer af stað. Um er að ræða samstarfsverkefni Kirkjubæjarskóla, Skaftárhrepps og Ungmennafélagsins Ármanns. Nánar um þetta þegar starf haustannar verður kynnt á morgun. Greinarnar sem börn og unglingar munu eiga kost á því að stunda á haustönn eru blak, körfubolti, fótbolti og karate. Komin er…
Lesa

Mikið fjör á strandblaksnámskeiði

Það var mikið fjör á strandblaksvellinum á Kirkjubæjarklaustri í gær. Þar fór fram kynningarnámskeið í strandblaki, þjálfari var Thelma Dögg Grétarsdóttir atvinnu- og landsliðskona í blaki. Námskeiðið var auglýst sem opið kynningarnámskeið í boði Ungmennafélagsins Ármanns. Byrjað var á námskeiði fyrir börn og síðar mættu unglingar og fullorðnir. Þátttaka var góð, alls tóku 18 þátt á námskeiðinu. Við þökkum Thelmu kærlega fyrir komuna og vel heppnað námskeið. Vekjum að lokum athygli á því að ef einhverjum langar að fara í strandblak er hægt að fá lánaða bolta í íþróttamiðstöðinni.
Lesa

Opið kynningarnámskeið í strandblaki

Þann 15. ágúst næstkomandi verður opið kynningarnámskeið í strandblaki á nýja vellinum við íþróttamiðstöðina á Kirkjubæjarklaustri. Thelma Dögg Grétarsdóttir mun hafa umsjón með námskeiðinu. Thelma er landsliðskona í blak og strandblaki og hefur spilað fyrir Íslands hönd á stórmótum. Skráning mun fara fram á Sportabler og hefst á næstu dögum. Fjölmennum!
Lesa

Göngutúr UMFÁ 28. júlí

Næsti göngutúr UMFÁ verður föstudaginn 28. júlí. Hreyfing fyrir alla unga sem aldna og allt þar á milli. Gengið verður að Tröllshyl í Landbroti. Mæting á hlaðið í Seglbúðum kl. 19:30, þaðan verður gengið að Tröllshyl. Endilega skráið ykkur í hópinn á Sportabler. https://www.sportabler.com/shop/umfarmann/1
Lesa

Skráning á Unglingalandsmót stendur yfir til 31. júlí

Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina er nú í fullum gangi. Opið er fyrir skráningar til mánudagsins 31. júlí, mótið er fyrir börn og unglinga 11-18 ára. Keppnisgreinar mótsins eru alls 19 og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvetjum alla til að kynna sér keppnisgreinarnar! Skráning fer fram á ulm.is ! USVS greiðir þátttökugjald fyrir sína keppendur líkt og síðustu ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa USVS á landsmótinu 2022 á Selfossi. Þar hlaut USVS fyrirmyndarbikar UMFÍ.
Lesa

Strandblaksnámskeið í ágúst

Búið er að finna nýja tímasetningu á strandblaksnámskeiðið sem átti að vera í lok júní en var frestað. Námskeiðið verður 18.-20. ágúst. Umsjón með námskeiðinu hefur Thelma Dögg Grétarsdóttir og henni til aðstoðar verður Sigþór Helgason. Hvetjum fólk til að taka þessa daga frá! Skráning þeirra sem höfðu skráð sig á námskeiðið í júní gildir áfram en vilji einhver fá endurgreitt er það líka í boði. Námskeiðið verður betur auglýst þegar nær dregur.
Lesa

Göngutúr UMFÁ 7. júlí

Næsti göngutúr UMFÁ verður á morgun, föstudag. Hreyfing fyrir alla unga sem aldna og allt þar á milli. Gengið verður á Heiðarborg. Mæting á efra bílastæðið við Fjaðrárgljúfur kl. 19:30, þaðan verður gengið á Heiðarborg. Endilega skráið ykkur í hópinn á Sportabler. https://www.sportabler.com/shop/umfarmann/1
Lesa